Á ....næstu dögum verður sett inn skráningarsíða, þar sem verður hægt að skrá sig inn rafrænt á nemendamótið okkar. Við biðjum fólk að fylgjast vel með, og skrá sig sem fyrst.
Fréttir
MCMLXXV
10.3.01
8.3.01
GÓÐ .......mæting hefur verið á vefsetur nemendamótins, sem er ekkert annað en gott um að segja. Í dag 8. mars hefur þessi vefur verið skoðaður 143 sinnum.
Ennþá óskum við eftir myndum til að setja á myndasíðuna. Myndum mætti skila inn með rafrænu formi í netfangið steingrg@simi.is. Eða þá með Íslandspósti í umslagi til Steingríms Rúnars Guðmundssonar Vesturvangi 7, 220 Hafnarfjörður Gott væri að merkja þær snyrtilega á bakhliðina. Og þá skal undirritaður ábyrgjast að þeim verði skilað strax eftir notkun.
STÓR........hluti vefseturs 1975 liggur niðri, vegna tregðu hjá netþjónustu vefmeistara. Fréttavefurinn virðist því aðeins virka. Bíðum eftir að stíflan losni. Annars verður gerður flutningur á vefsetri, þó án þess að gestir verði varir við.
7.3.01
Heyrst hefur... að fyrirhugað sé að veita foreldrum Sverris heitins gjöf
frá okkur skólafélögum hans, í sumar þegar við hittumst. Hugmyndin er sú að
gjöfin verði björt og falleg og er nefndin að freista þess hvort hún gæti
verið unnin að einhverju leiti af einhverju okkar. Annars kemur allt til
greina, hið ýmsasta form eða efni, og þarf hún alls ekki að kosta mikið, það
er að sjálfsögðu hugurinn á bakvið sem gildir. Allar hugmyndir vel þegnar í
pósti....Nefndin

