13.11.02

Enn bætist í hópinn!

Þann 3. nóvember s.l eignaðist Elín Björg Þráinsdóttir og hennar unnusti hann Unnar Már Ástþórsson strák. Nánari fréttir eru ekki fyrir hendi. En upplýsingar óskast.
Ég og Sæunn, og svo Kristján Freyr og Bryndís Stefáns skírðum okkar börn sömu helgina 12-13 október. Okkar stelpa heitir Svava Rún og Kristjánssonur og Bryndísar var skírður Stefán Bjartur.

Einnig hef ég fréttir af 2 skólasystrum sem eru að þykkna undir belti. Ég vil ekki opinbera það fyrr en það er öruggt að það megi:). Verið dugleg að senda mér fréttir af skólafélögum okkar. Og ég lofa því! Um leið og ég hef tíma, skal ég laga til þessa síðu okkar!