4.5.01

Fast á eftir Sigrúnu skráði sig inn Bergvin Friðleifur Þráinsson.

Sigrún María Bjarnadóttir, nýbökuð móðir hefur skráð sig á nemendamótið.

Út er kominn hljómdiskurinn Tímaspursmál með hljómsveitinni Kalk. Af því tilefni ætlar sveitin að halda útgáfu tónleika á Gauk á stöng á laugardaginn kl 21:00. Komið, sjáið og hlustið á 2 af okkar ástkæru skólafélögum sýna töfrabrögð og sápukúlublástur.

2.5.01

Í dag ..........bættist símamaðurinn Eyþór Ólafur Bergmannsson við á listann góða.

Tælendingar.........ætla að senda sinn fulltrúa á mótið í sumar. Og það er enginn annar en Auðunn Einarsson. Þetta hafði Auðunn að segja um komu sína á skerið: "Ég kom sérstaklega frá Thailandi til að hitta ykkur, þannig
að þið verðið að fjölmenna á djammið!

Sjáumst

Kv.

Besti golfari í Thailandi"

Í dag..............hefur næstsíðasti nefndarmeðlimurinn Bryndís Stefánsdóttir skráð sig á nemendamótið. Og ég hvet síðasta nefndarmeðlim til að skrá sig.