22.5.01

Enn.....bætist við af fólki á síðustu vikum fyrir nemendamótið. Smári Ólafsson og Linda Björk Magnúsdóttir hafa tilkynnt komu sína, en í sitthvoru lagi.

21.5.01

Klippingu á heimildarmyndinni "That "75 Show" er senn á enda. Samkvæmt viðtali við leikstjóra í gærkvöldi átti eftir að setja inn tónlist og fínpússa smáatriði. Það liggur mikil leynd yfir þessu verkefni. Auk sýningar á þessari heimildarmynd verður boðið upp á veglega dagskrá á Hvítasunnuhelginni. Nefndin minnir einnig fólk á að greiða sem allra allra allra fyrst, inn á reikninginn.
Eins og í orðsendingu segir "Þátttökugjaldið er kr. 3000,- og þarf að greiða það fyrir 20. maí og greiðist það inn reikning í Landsbanka Íslands hf., Ísafirði nr. 0156-26-19759 , kt:0110753129. Innifalið í því gjaldi eru allar samgöngur, gjöf til foreldra Sverris Karls heitins og allur annar útlagður kostnaður nefndarinnar s.s sendingarkostnaður bréfa o.þh.

Gert er ráð fyrir því að hver og einn greiði fyrir sig (og sinn maka) á laugardagskvöldinu en boðið er upp á 3ja rétta kvöldverð og dansleik og er verðuð um kr. 3.000,-.
"

20.5.01

Dúettinn Guðmundur Geir Björnsson og Kristinn Elvar Arnarsson skráðu sig með 10 mínútna millibili.
Einnig bættist við Linda Sigurbjörg Hilmirsdóttir. Það ætlar að verða metþátttaka.