28.8.02

Heyrst hefur....
Að skólafélagi okkar og vinkona, Bjarnveig Magnúsdóttir sé að fara að ganga í það heilaga í hinni stóru Ameríku, nánar tiltekið í Las Vegas. Hinn heppni heitir Gunnar Lárus Hjálmarsson (Dr. Gunni). Að hans sögn mun hann verða klæddur í kúrekastíl með ofurstóran hatt cowboyhatt. Ekki höfum við fengið nánari lýsingar á klæðnaði brúðarinnar. Hjónin hafa neitað fjölmiðlum um myndir frá brúðkaupinu.

Drengur fæddur
Í morgun kl 5:58 fengu Kristján Freyr og Bryndís Stefáns sveinbarn. 17 merkur og 56 cm. Dökkhærður bítill með úfið hár. Foreldrum og barni heilsast vel að sögn nýbökuðum föður. Til hamingju Kristján og Bryndís!

Nú styttist óðum í að okkar Sæunnar frumburður komi í heiminn. Þið getið alltaf fylgst með því á http://www.simnet.is/steingrimur/bumbubui