GEIRFUGLARNIR
Ég minni á fréttatilkynningu hér neðar frá Geirfuglunum!
Fréttir
MCMLXXV
18.5.01
Buttercup hefur gefið út 3 diska, þannig að kannski má ég ekki kalla þau ung, en samt efnileg,,,,,,,,,,,,,verð að segja gott og vel spilandi band!
www.buttercup.is
Bassaleikarinn knái, Jakob Símon Jakobsson hefur tilkynnt að hann muni mæta á nemendamótið sem verður eftir 2 vikur. Heyrst hefur að með honum muni fylgja hljómsveitin Buttercup. Það er ung og efnileg hljómsveit sem Símon er einmitt meðlimur í. Ótrúlegt að þessir krakkar fari ekki í músíktilraunir!! Frábær hljómsveit!
16.5.01
Vinsældarlisti 1975
Nú hafa nefndarmeðlimir spáð í lagaval árgangsins. Hvað hlustaðir þú á félagi góður, á þínum grunnskólaárum? Okkur langar að fá smá innsýn í hvað við vorum að hlusta á. Ég, undirritaður hafði engan fastan tónlistarsmekk á þessum tíma. Miðað við að ég, Jón Geir og Palli spáðum óspart í Halla og Ladda á okkar yngri árum. Svo þróaðist það síðar út í U2 og fleiri kappa. Hins vegar hef ég ekki hugmynd um hvað hinir voru að hlusta á þegar ég sat og hlustaði bara á Bubba. Það sem ég er að reyna að fá svar við, hvað var INN á þessum tíma, td. 8.-10. bekk? Þetta legg ég undir ykkur kæru bekkjarsystkin, sendið mér netpóst hér
Fréttatilkynning:
Góðir landsmenn.
Rauðhært fólk hefur átt talsvert undir högg að sækja á sviði hámenningar síðustu 173 ár, og af því tilefni hafa hinir víðsjárverðu Geirfuglar ákveðið að leggja sitt af mörkum til að rétta hlut þeirra, því Geirfuglarnir eru vinir litla mannsins. Gaman er að segja frá því að Halldór Gylfason, söngvari sveitarinnar er rauðbirkinn, enda talinn afkomandi Papa í beinan karllegg, og ekki nóg með það heldur hafa þeir náð að ginna til liðs við sig nokkra af mest framúrskarandi rauðhærðu
listamönnum þjóðarinnar; nefnilega Ómar Ragnarsson, Stein Ármann Magnússon, Egil Helgason og einn sem kýs að njóta nafnleyndar af skattaástæðum. Einnig hefur Hr. Rass ákveðið að leggja málefninu lið enda þörfin brýn. Reyndar má
vara við því að Hr. Rass kýs að skerða hár sitt við rót og er af þeim sökum
ekki alltaf gott að átta sig á hvers konar lit hár hans ber, en flestum líður vel í návist Hr. Rasss.
Geirfuglarnir, ásamt 4 (eða 5?) rauðhærðum gestasöngvurum, vilja því
bjóða öllum landsmönnum að koma og samfagna í söng og dansi degi rauðhærða
mannsins, 19. maí 2001 í Leikhúskjallaranum. Áætlað er að skipulagður dans hefjist um miðnætti en dyr hússins ljúkast upp kl. 23, og er aðgangur ókeypis til miðnættis.
Til að sem flestir eigi möguleika á að koma eru þeir sem þessi skilaboð fá beðnir um að áframsenda á alla sem þeim eru kærastir.
Með ástar- & tantrakveðju frá hinum góðglöðu Geirfuglunum,
Kristján Freyr Halldórsson
Myndir
Fólk er núna að taka við sér í sambandi við myndir. Fólk er byrjað í stríðum straumum að senda myndir inn til okkar. Fólk hefur líka verið að heimta fleiri myndir, en ef engar myndir eru sendar inn = engar myndir á síðunni........en það er að lagast!
15.5.01
Bjarnveig Magnúsdóttir ætlar loxins að láta verða af því að mæta, en samkv. gestabók er hún eitthvað móðguð út í gestabókina. Bjarnveig!!!! fyrirgefðu að þú strokaðist út!!!! Mættu!!! *grát* Þar hafiði það!
DJÖFULL................verður fín mæting, með þessu áframhaldi vantar ekki marga uppá. Það væri gaman að heyra líka í þeim ætla samt ekki að mæta. Eins og er höfum fengið fréttir af Atla Geir sem kemst ekki, sem er í Kanada, Hröbbu sem er í Danmörku, Hjámari sem neyðist til að fara í útskriftarferð eitthvað langt í burtu man ekki hvert.
Heildarlistinn í dag:
Páll Einarsson
Þór Pétursson
Guðmundur Óli Tryggvason
Svavar Þór Einarsson
Kristján Freyr Halldórsson
Sunna Guðmundsdóttir
Steingrímur R. Guðmundsson
Elín Björg Þráinsdóttir
Erna Sigrún Jónsdóttir
Sigrún María Bjarnadóttir
Bragi Valdimar Skúlason
Halldór S. Sveinsson
Jens Andri Fylkisson
Guðrún Margrét Jökulsdóttir
Guðmundur Birgir Halldórsson
Birna M. Guðmundsdóttir
Stefán Freyr Baldursson
Magnús Kristjánsson
Sigrún Arna Elvarsdóttir
Haukur Örn Harðarson
Kristjana Einarsdóttir
Bryndís Stefánsdóttir
Auðunn Einarsson
Eyþór Ólafur Bergmannsson
Bergvin Friðleifur Þráinsson
Guðrún Steinunn Kristinsdóttir
Íris Hrund Halldórsdóttir
Sigurveig Björg Harðardóttir
Róbert Hafsteinsson
Anna Aðalbjörnsdóttir
Gabríela Aðalbjörnsdóttir
Unnar Þór Reynisson
Kolbrún Stígsdóttir
Guðrún Harðardóttir
Enn bætist á listann góða. Því í gærkveldi bættist við Kolbrún Stígsdóttir, ásamt Guðrúnu Harðardóttur, sem fylgdi lengi vel 1975 árganginum, en fluttist frá Ísafirði áður en árgangurinn kláraði Grunnskóla Ísafjarðar .Því fleiri því betra:)
Fyrrverandi...........bassaleikari hljómsveitarinnar Krullupinnar, sem lagði upp laupana snemma á síðasta áratug, Unnar Þór Reynisson,hefur skráð sig. Ekki hefur hann tjáð sig um endurkomu hljómsveitarinnar.
Næsti Hnífsdælingur myndi vera Gabríela Aðalbjörnsdóttir sem kom fast á eftir systir sinni inn á heimasíðuna okkar og skráði sig til leiks. Nokkuð gott!
14.5.01
Ég vil...........benda ykkur á mikilvæga orðsendingu frá nefndinni! Lesið hana hér
Hnífsdælingurinn.........Anna Aðalbjörnsdóttir hefur skráð sig á mótið. Og hún er félagi númer 31 sem skráir sig.

