21.3.01

Heyrst hefur..........að það sé Vestfirðingaball á næstunni í Þjóðleikhúskjallaranum. Ekki veit sveitastrákurinn ég, hvort það sé eitthvað spennandi fyrir Ísfirðinga búsetta fyrir sunnan. En fyrir þá sem hafa áhuga, þá er það hér með komið á framfæri fyrir þá líka sem vita ekki af þessu. Fínt að hita upp þar kannski:)?

19.3.01

FÓLK.......er í óða önn að skrá sig á nemendamótið. Það er ljóst að fólk á okkar aldri er duglegt að nota Veraldarvefinn og fylgist vel með hvað er að gerast á þessari síðu. Gaman væri samt að fá "comment" frá fleirum. Og það er komið í ljós hvað MCMLXXV þýðir!!! OG það þýðir auðvitað 1975. ÞAð var ungur maður frá Hnífsdal, Kristján Freyr 25 ára sem kom með rétt svar við þessari spurningu.:) Ég vil líka minn á að gestabókin VIRKAR!! Ef ég fer með vitleysu skal ég hundur heita!!!!