22.1.02

Já og gleðilegt ár!
Þið getið svo fylgst með minni persónulegu síðu hér

Eru ekki allir í stuði?
Nú bara fer ég að rífa mig upp á rassgatinu og koma þessari síðu gott skap! Hinir mega og allir aðrir mega líka taka sig til og koma með hugmyndir. Að vísu er smá lægð í okkur síðan við hittumst. Fólk er líklega enn að ná sér:). En hugmyndin er hjá mér að setja þessa fréttasíðu fremst á síðuna okkar. Þannig að hægt sé að koma beint inn á það sem er að gerast.
Ég hef engar fréttir fengið af neinum. Kannski af því að ég hitti aldrei neinn. En alla vega myndi ég frétta af því ef einhver hefur fæðst eða eitthvað álíka. Ef einhverjir vilja hafa putana í þessari síðu er þeim velkomið á meðan þeir nenna. Hafið það gott. Ég verð líka sjálfur að fara að hafa samband við fólk. Er örugglega orðinn hræddur við fólk. Palli, Jón Geir og fleiri! Hvar eruð þið??? Kannski þetta sé bara partur af því að verða eldri. Fólk hefur minni tíma til að hittast. Eða kannski gef ég mér ekki tíma til að hittast, og dottinn út af "aðhittastlistanum":( Meira seinna.