30.8.01

Er fólk hætt að koma hingað? Mjög líklega vegna þess að það er ekkert að gerast:). Ég hélt að það væri svo mikið af kjaftakellingum í þessum árgangi, sem gæti frætt okkur um allt og alla í þessum árgangi. Ég stefni að því að ganga frá þessari síðu, þannig að hún reki sig bara sjálf á næstunni:). Fréttir verða færðar á forsíðu þannig að fólk getur litið inn stöku sinnum. Einnig er öllum frjálst að biðja um aðgang að þessum fréttavef. Það er mjög gaman að ef allir geta byggt um þennan vef. Að vísu gætu orðið smá breytingar á næstu dögum og síðan verður hýst annars staðar. Í millitíðinni gæti hún dottið út en það þarf ekki endilega að gerast. Þeir sem vilja taka þátt í að dæla inn fréttum og tilkynningum sendið mail á mig steingrg@simi.is