30.5.03

Ný síða í smíðum
Minn er að smíða nýja síðu. Um leið og hún er tilbúin fær hún nýja slóð. www.sjotiuogfimm.tk . Látið þetta endilega ganga. Þeir sem vilja vera á póstlista árgangs 1975 frá Ísafirði, sendi mér endilega línu, mér sýnist nefnilega mörg netfanga ykkar ekki vera virk lengur.

19.5.03

Önnur stúlka bætist í hópinn!
Hr. og fr. Sleggja eignuðust sitt fyrsta barn í gær. Það eru þau Sunna Guðmundsdóttir og Þorsteinn Jónínuson sem eignuðust myndarstelpu í gær 18. maí. Við óskum þeim bara innilega til hamingju með það. Hef bara ekki meiri upplýsingar um málið. Vonandi fær maður mynd síðar.

13.11.02

Enn bætist í hópinn!

Þann 3. nóvember s.l eignaðist Elín Björg Þráinsdóttir og hennar unnusti hann Unnar Már Ástþórsson strák. Nánari fréttir eru ekki fyrir hendi. En upplýsingar óskast.
Ég og Sæunn, og svo Kristján Freyr og Bryndís Stefáns skírðum okkar börn sömu helgina 12-13 október. Okkar stelpa heitir Svava Rún og Kristjánssonur og Bryndísar var skírður Stefán Bjartur.

Einnig hef ég fréttir af 2 skólasystrum sem eru að þykkna undir belti. Ég vil ekki opinbera það fyrr en það er öruggt að það megi:). Verið dugleg að senda mér fréttir af skólafélögum okkar. Og ég lofa því! Um leið og ég hef tíma, skal ég laga til þessa síðu okkar!

27.9.02

Stúlka fædd!
Þann 22. september kl 7:13 fæddist okkur Sæunni myndarleg stúlka. 3396 gr. og 50 cm. Sem gæra tæp 14 merkur. Móður og barni heilsast vel. Vegna anna síðustu daga hefur þessi frétt ekki borist fyrr en nú.
Bendi á hlekk neðar í eldri fréttum. Þar er heimasíða þeirra litlu. Þar má sjá myndir og fréttir.

28.8.02

Heyrst hefur....
Að skólafélagi okkar og vinkona, Bjarnveig Magnúsdóttir sé að fara að ganga í það heilaga í hinni stóru Ameríku, nánar tiltekið í Las Vegas. Hinn heppni heitir Gunnar Lárus Hjálmarsson (Dr. Gunni). Að hans sögn mun hann verða klæddur í kúrekastíl með ofurstóran hatt cowboyhatt. Ekki höfum við fengið nánari lýsingar á klæðnaði brúðarinnar. Hjónin hafa neitað fjölmiðlum um myndir frá brúðkaupinu.

Drengur fæddur
Í morgun kl 5:58 fengu Kristján Freyr og Bryndís Stefáns sveinbarn. 17 merkur og 56 cm. Dökkhærður bítill með úfið hár. Foreldrum og barni heilsast vel að sögn nýbökuðum föður. Til hamingju Kristján og Bryndís!

Nú styttist óðum í að okkar Sæunnar frumburður komi í heiminn. Þið getið alltaf fylgst með því á http://www.simnet.is/steingrimur/bumbubui

15.7.02

Stúlka er fædd!
Var að fá tilkynningu frá Írisi Ragnars, um það að Hrafnhildur Þorleifs hafi átt stelpu þann 13. júlí síðast liðinn. Ekki hef ég fengið nánari upplýsingar en þetta. Ég óska nýbökuðum foreldrum til hamingju.
Ég vil endilega fá svona fréttir takk fyrir.

22.5.02

Gleðilegt sumar!
Nú fer að líða ár síðan við hittumst síðast. Djöfull var það gaman!! Það hefur ekkert gerst á þessari síðu síðan þá. Ég setti inn á kosningasíðuna spurningu. Hún er: Eigum við að reyna að halda þessari síðu gangandi? Ég segi hiklaust JÁ. Mig persónulega er farið að vanta pláss fyrir hana. Hún er nefnilega vistuð á stað sem ég rauninni á ekki lengur:). Ef einhver snillingur veit um ókeypis hýsingarstað, og hefur líka áhuga að vera með putana í þessari síðu, þá er það guðvelkomið.


Í fréttum er þetta helst
Mér skilst að það sé fjölgun hjá þessum árgangi í ár. Þar á meðal er ég sjálfur að verða faðir. Áætlaður dagur er 22. september. Svo frétti ég af Kristjáni Frey og Bryndísi. Þau eru víst á leiðinni með kríli í ágúst. Elínu Þráins rakst ég á í Hafnarfirði. Og hún er held ég bara í október. Þetta er varla leyndarmál lengur?:) Ef þið hafið áhuga þá höfum við sett upp síðu fyrir bumbubúann. www.barnaland.is/barn/5045
Ef það eru fleiri á leiðinni með eitthvað, endilega látið vita. Hér er einmitt staðurinn til að setja hlutina á.

Hvað er að gerast?